Helsu tímamót hjólbarðasögunnar

1843 - Charles Goodyear tilkynnir brennisteinsmeðferð 
(“Vulcanisation” eða brennisteinsmeðferð er efnisleg aðferð til að umbreyta gúmmí eða tengdum fjölliðum í sterkari efni með því að bæta við brennistein eða öðrum sambærilegum efnum. Þessi aukefni breyta fjölliðum með því að mynda “crosslinks” (brýr) milli einstakra fjötra fjölliða. 
Fjöldinn allur af vörum eru  gerðar  með vúlkaníseruðu gúmmíi. 
t.d hjólbarðar, skósólar og slöngurFerlið er nefnt eftir Vulcan, Rómönskum eldguð. Hart vúlkaníserað gúmmí er stundum selt undir merkjum ebónít eða vulcanite, og er notað til að framleiða hluti eins og keilu kúlur og saxófón munnstykki.)

1846 - Robert William Thomson hannar og fær einkaleyfi á “pneumatic” eða þrýstilofthjólbarða (hér eftir nefndur lofthjólbarði). 

1880 - John Boyd Dunlop byrjar að nota lofthjólbarða undir reiðhjól en erfitt reynist að festa þau við gjarðirnar og var oft notað einskonar límband,  bandspotti eða dekkin hreynlega límd við felgurnar til að festa þau.
 
1888 – Fyrsti lofthjólbarðinn fer í almenna framleiðslu hjá Dunlop.
 
1889 - Dunlop fær einkaleyfi á lofthjólbarða í Bretlandi. 

1889 - Adolphe Clément sér Dunlop lofthjólbarða í London og kaupir rétt til framleiðslu á Frakklandsmarkaði fyrir 50.000 franka.
 
1890 - Dunlop, og William Harvey Du Cros hefja framleiðslu lofthjólbarða á Írlandi; stífir kanntar með vírlögum ásamt sér mótuðum felgum gerir það að verkum að nú þarf ekki að binda eða líma dekk við felgur. 

1890 - Bartlett Clincher kanntur  kynntur til sögunnar.
 
1891 - Einkaleyfi Dunlop er ógilt í þágu Thomson.

1891 – Michelin bræðurnir André og Edouard fá einkaleyfi fyrir lausum (útskiptanlegum, hreyfanlegum) lofthjólbörðum sem voru notaðir af Charles Terront að vinna fyrstu Paris-Brest-Paris keppnina

. 
1892 – Hjólbarði með stífum könntum kynntur í Bandaríkjunum.


1893 – Bómullar styrktir þræðir birtast.


1894 - E.J. Pennington finnur upp fyrsta slönguhjólbarðann.

1895 - Michelin kynnir lofthjólbarða fyrir bifreiðar, André Michelin notar styrkta þræði í hjólbörðum í París-Bordeaux-Paris rallýinu. Um 1897 er miðað við þessa hjólbarða sem staðal keppnishjólbörðum.

1898 – Einkaleyfi slegið á Schrader ventlaloka.

1900 - Palmer (England) og BFGoodrich (USA) kynna hjólbarða með styrkta þræði.
 
1903 - Goodyear fær einkaleyfi á fyrsta slöngulausa hjólbarðanum sem ekki var kynnturr fyrr en árið 1954 á Packard bílum.

1904 - Goodyear og Firestone byrja að framleiða hjólbarða með styrkta þræði

1904 – Felgur sem auðvelt er að umfelga kynntar til sögunnar, ökumenn geta nú auðveldlega lagað hjólbaðana sjálfir.

1906 – Fyrsti lofthjólbarðinn fyrir flugvélar kynntur til sögunnar.

1908 - Frank Seiberling hannar mynstraða hjólbarða til að auka veggrip. Eftir þessa hönnun fóru margir að gera tilraunir með leður, tré og stál til að bæta grip og endingu án varanlegs árangurs.

1910 - Silvertown Rubber Company (London) bætir “carbon black” eða svöru kolefni í gúmmíblönduna og það eykur endingu. (Hægt að ná kolefni úr jarðgasi og öðru jarðefnaeldsneyti. Sé hráefnið hitað verulega með efnahvötum í ferli sem nefnist hitagreining myndast hreint kolefni ásamt vetni.
Efnajafnan er þannig:  CH4 + orka -> 2H2 + C
Kolefnið kemur úr hvarfinu sem fínlegt kolsvart duft og nefnist svart kolefni. Það er notað í dekk, plast ofl. Efnið eykur styrk,endingu og vörn gegn UV geislum.

IARC (International Agency Research on Cancer) metur það svo að svart kolefni sé hugsanlega krabbameinsvaldandi (IARC Group 2B). Skamms tíma áraun af  háum styrk af svörtu kolefni eða svörtu ryki getur valdið óþægindum í efri öndunarvegi með vélrænni ertingu.)

1919 - Goodyear og Dunlop kynna lofthjólbarða fyrir vörubíla og ýmsar gerðir vinnuvéla.

1923 – Firestone kynnir sitt fyrsta slöngudekk fyrir stærri hjólbarða en það þolir meiri sveiganleika á loftþrýsting. Frumraunin fór undir fyrsta Chrysler  70 bílinn árið 1924.
 
1929 – Hjólbarðar úr gegnheilu gúmmíi teknir úr umferð.
 
1937 - BFGoodrich kynnir til sögunnar fyrsta hjólbarðann sem búinn er til úr gerviefnum.

1938 - Goodyear kynnir “rayon” þræði í hjólbörðum. Rayon er hálf-gerviefni.

1946 - Michelin kynnir Radial hjólbarða. 
(Arthur W. Savage farsæll hjólbarða framleiðandi og uppfinningamaður frá San Diego CA. hannaði fyrsta Radial hjólbarðann árið 1915 og fékk á þá hönnun einkaleyfi sama ár. Einkaleyfi Savage rann út árið 1949. Michelin þróaði þessa hönnun frekar og auglýsti vel. Þessi tækni fór af stað um allan heim árið 1946.Vegna þeirra kosta sem Radial hefur í hjólbörðum hefur það nú orðið staðall í hönnun hjólbarða fyrir all flest ökutæki. 
Hjólbarðar eru ekki bara búnir til úr gúmmíi. Þeir væru allt of sveigjanlegir og veikburða. Innan í  gúmmíinu eru raðir af styrktum þráðum sem eykur burðargetu og endingu. Nær allir hjólbarðar síðan 1960 eru úr lögum af gúmmíi og þráða, Það er bómull, pólýester, stáli og / eða öðrum spunaefnum.Þetta net þráða sem gefur hjólbarðanum styrk og lögun er kallað skrokkur. 
Radial hjólbarðalögun heldur þráðlögun í 90° horni. Þessi hönnun kemur í veg fyrir að lögin núi hvert annað þegar álag er á hjólbarðanum. Þetta skiptir miklu máli þegar kemur að minni eyðslu á eldsneyti. Þetta gerir það einning að verkum að stundum virðist minna loft í hjólbörðunum en það er þar sem hliðarnar virðast belgjast út.)

1947 - Goodyear kynnir fyrstu nylon styrktu hjólbarðana. 

1947 - BFGoodrich kynnir slöngulausa hjólbarða.

1963 - Goodyear  kynnir notkun á pólýester þráðum.

1965 - Armstrong Rubber kynnir “byas-ply” þræði úr fiberglass í hjólbörðum.

1965 - BFGoodrich býður upp á fyrsta Radial hjólbarðann í Norður-Ameríku.

1967 – Firestone og Goodyear kynna Poly-gler hjólbarða.

1968 – Samgönguráð Bandaríkjana (United States Department of Transportation) skylda DOT merkingar við framleiðsluferli á nýjum  hjólbörðum í Bandaríkjunum. DOT merking segir til um framleiðslutíma.
 
1974 - Pirelli kynnir nýjar breiður (lág hlutföll eða “low profile”) Radial hjólbarða.

Framleiðandi                Land                 Stofnár

Bridgestone Corporation   Japan 1931
Continental Corporation Þýskaland 1871
Cooper Tires USA 1914
Federal Corporation      Taiwan 1954
Goodyear USA 1898
Hankook Tire   Suður Kórea 1941
Kumho Tires Suður Kórea 1690
Michelin Group Frakkaland 1889
Maxxis Tires Taiwan 1967
Nankang Rubber Tire Taiwan 1959
Nexen Tire Suður Kórea 1942
Nokian Tyres Group Finnland 1898
Pirelli Ítalía 1872
Sumitomo Rubber Indust. Japan 1909
Toyo Tire & Rubber Co. Japan 1943
Yokohama Rubber Co. Japan 1910

      

 

Forsíða Tilboð Fróðleikur